Jæja krakkar mínir.
Það er ekki hægt að segja annað en að þessi helgi hafi verið
alveg stórkostleg í alla staði, skemmtileg, sorgleg, hættuleg og ég
veit ekki meir.
Þetta var þannig að við fórum í afmæli til hennar Ingunnar
minnar.
Til hamingju með daginn
mús!
Allavega var þarna á boðstólnum ostapinnar,
kjúklingasalat,bolla,brauð, súkkulaði og bara allur andskotinn.
geggjað gott að borða! En það er alltaf þannig í afmæli hjá Ingunni
að það er farið í fullt af leikjum og einhverju skemmtilegu. Það
var farið í leik þar sem að strákarnir áttu að finna kærustuna sína
með því að káfa á kálfunum á öllum stelpunum, það fyndna var að það
voru alveg 3 að safna í vax hahahaha..... Síðan var farið í
einhvern spurningaleik. En toppuinn var
POKAHLAUPIÐ.
Það er óhætt að segja að það hafi slegið í gegn!! Þetta byrjaði vel
og fyrstu 3 voru búnir að hoppa, það voru 5 í liði. Mitt lið var að
vinna og Ingunn var að hoppa. Siggulingur sá að þarna myndi hún
tapa fyrir allan peninginn og ákvað að taka til örþrifa ráða. Hún
svindlaði sem endaði með því að Ingunn datt og
Siggulingur ætlaði að henda henni aftur í jörðina en ekki gekk
betur en það að Ingunn reisti sig frekar hratt upp og skallaði
Siggguling. Sigga lá þarna þvert yfirbrautina! Allir að segja henni
að drulla sér frá svo þegar greyið stóð upp þá var Palli að hoppa
og va að reyna að komast fram hjá henni en nei hann hoppaði líka á
hana. En þegar Siggulingur tók hendina frá auganu brá flestum helgi
ég! Hún var eins og hringjarinn! Fallega kúlan sem að kom! hef
sjaldan séð svona! Þetta var rosalegt!! Endaði með að hún fór heim
hálf vönkuð og með aðskotahlut í andlitinu.
En við hin héldum áfram að drekka og djúsa. Þegar allt áfengi í
húsinu var búið var ákveðið að fara á ball. Gísli og Ingibjörg
keyrðu öllum á ball. Þetta ball leit alls ekki vel út í byrjun, En
þetta blessaðist allt mikið að eldra fólki þarna. En maður dansaði
allan tímann en það vantaði pabbi minn mikið í sveiflurnar, en
hanner á sjónum.
En já talandi um að Pabbi sé á sjónum!!! Mamma fór líka á sjóinn
og ég er búin að vera munaðarlaus í 2 vikur!!! Þetta er hræðilegt,
mamma gamla fer bara á sjóinn sem háseti. Ég get ekki sagt að ég
hafi verið rosalega ánægð að vera ein heima. Því það er það allra
leiðilegasta! Ekkert skemmtilegt og svo get ég ekki einu sinni
hringt í mömmu og á normal degi hringi ég í hana svona 3-4 sinnum
áður en ég kem heim úr vinnunni. Ég get ekki hringt í hana því að
það er ekkert símasamband. talandi um að naflastrangurinn hafi
rifnað núna þegar gamla skildi litla barnið sitt eftir aleina
heima.
En það er leikur núna á miðvikudaginn við Hött heimaleikur. Við
ætlum að vinna þann leik annað kemur ekki til greina!!! Er það ekki
stúlkur?!?!?!?!
En nú koma nokkrir skandalar......
Skandall
Einhver kom of seint í afmæli....
Einhver vissi ekki hvað hann gaf í afmælisgjöf...
Einhver játaði syndir sínar....
Einhver var með gott plan....
Einhverjir fóru á trúnó...
Einhver fékk æxli í framan.... glóðurauga...
Einhver var afbriðisamur...
Einhver var ofurölvi....
Einhver var laddi...
Einhver var voða svangur...
Einhver stal sprite....
Einhver var með fyrstu hjálp...
Einhver vann pokahlaupið...
Einhver gat ekki hækkað í græjunum...
Einhver borðaði fullt af áfengum ávöxtum...
Einhver gerði annan vandræðilegan....
Einhver eyddi fullt fullt af pening....
Einhver hélt að han væri milli...
Einhver var að hözzla....
Einhver var svo mikið g að ekki var farið á ball...
Einhver var dansari inn við beinið...
Einhver sveik einhvern um dans...
Einhverjir ældu...
Einhver reyndi við einhvern...
Einhver var einhversstaðar yfir nótt...
Einhver bað um nr hjá einhverjum...
Einhver fer í taugarnar á einhverjum...
Einhver var alger perla...
En ég bara hreinlega nenni ekki að setja fleiri skandala.
Ég er búin að setja inn nýja skoðunarkönnun takið
hana endilega 
Vil koma að smá boðum til Söru!!! Ég heiti Hulda og bý að
Helgafelli 7 ef þú skildir vera búin að gleyma því. Bæ kroppar.
Speki dagsins:
"I never think of the future - it comes soon
enough."